Valmynd
0
Vekjaraklukka Flip Travel – Soft Gold

Margverðlaunaða Flip travel vekjaraklukkan frá Lexon er vönduð og skemmtilega einföld. Travel klukkan er lítil og nett sem er gott að hafa með í handfarangri. Lítill takki er á bakhlið klukkunnar til að slökkva á henni svo að hún fari ekki að hringja á ferðalaginu.

Til þess að láta klukkuna vekja þig þá snýrðu ON-hliðinni upp. Til að slökkva á klukkunni þá snýrðu OFF hliðinni upp. Ef þú vilt sofa aðeins lengur eða ‘snooza’ er nóg að snerta klukkuna.

Á klukkunni er LCD skjár sem lýsist upp með því að snerta klukkuna. Það eru takkar aftan á vekjaraklukkunni sem gera þér kleift að stilla tímann og vekjarann.  Lexon klukkan er úr silicon gúmmí.  Klukkan gengur fyrir 2 x AAA rafhlöðum en þau fylgja með.

5.990kr.
Vörunni hefur verið bætt við í körfu.